Myndir
Djammið
Leitarbox

31.03.2007 13:21:29 / hofy

Jæja

Jæja nú ætla ég að gera það sem ég hata þegar aðrir gera það en ég er búinn að opna nýtt blogg......

www.theoneandonly.bloggar.is

Verið velkomin í heimsókn!

e.s. ekki gleyma að breita mínu bloggi á þínu bloggi... :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.03.2007 09:12:46 / hofy

Hellú Fljúgandi furðu fiskarnir mínir.

Vinnan hér

Og vinnan þar

Vinnan bara allstaðar…

 

Vá ég er að fara að deyja í vinnunni, sumir dagar eru alveg að gera utaf við mig en svo koma aðrir dagar þar sem rafvirkjadúllurnar mínar eru ljós í myrkrinu.

 

En ég hef hugsað mér að koma mér upp góðri kontakt bók, þar sem maður getur flett fólki upp, s.s. E-mail, sími og heimilisfang, svona uppá jólakort, póstkort frá ítalíu nú eða ef maður þarf að spjalla við einhvern…hehehe já og svo maður geti flett fólki upp þegar maður kemur heim eftir 10 ára nám í útlöndum…:o)

Svo ég ætla að byðja alla þá sem koma hérna inn á síðuna að fylla þetta út og senda mér það á meilið mitt Hofy6@hotmail.com og það væri alls ekki slæmt að fá mynd með :o)

 

Nafn (Fullt nafn):

Afmælisdagur(18.03.86):

Adressa:

Framtíðarplan:

E-mail:

Hvernig þekkir þú mig?:


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.03.2007 16:42:18 / hofy

Vinir….

Vinir….

Í gegnum lífið hafa og eiga margir vinir eftir að ganga, sumir skilja eftir djúp fótspor  í hjartanu svo þú gleymir þeim aldrei, aðrir skilja eftir fótspor sem svo snjóar í svo þeir gætu gleimst smátt og smátt en mér finnst bestu vinirnir þeir sem skilja ekki aðeins eftir fótspor heldur sukku svo djúpt að þeir tíndu stígvélinu sínu nú eða þeir sem sitja enn fastir.:haha:

Suma daga finnst mér ég vera ein í heiminum og eiga enga vini,:( en svo koma þessar stundir þar sem maður fer inní sjallan og allir virðast vera vinir manns.:P Ég elska svoleiðis stundir þar sem maður getur valla snúið sér við án þess að fá bros eða “hæ” nú og ef maður er heppinn koss á kinnina og knús.:lol:

En afhverju þarf það alltaf að vera þegar ég er full, er ég skemmtilegri full en edrú, guð ég vona ekki. :|

Svo mergurinn málsins með þessu er að ef góða álfadísinn mun veita mér eina ósk á lífsleiðinni, þá væri hún að þegar ég kveð þennan heim þá verði ég með úttraðkað hjarta og helling af stígvélum í því.

 

 

 


» 19 hafa sagt sína skoðun

09.03.2007 16:50:13 / hofy

OKY

æ sorry bloggleisið dúllurnar mínar, ég skal blogga um helgina.....

» 3 hafa sagt sína skoðun

23.02.2007 16:48:06 / hofy

Tómas Ýmir

Kæru vinir, Svona í “tilefni” af helgi sem á eftir að verða erfið mörgum okkar þá ákvað ég að segja nokkur orð. Það era ð verða komið ár. Ár síðan að Tomas yfirgaf okkur, og maður saknar hans alltaf jafn mikið. En mín kenning er sú að guð taki ekki svona gott folk frá okkur nema að hann ætli þeim æðri tilgang. Best að ég segi ekki mikið meira en ég ætla að skella þessu hérna inn.

 

Ég lifi

 

Er ég kveð

Skuluð þér eygi syrgja

Heldur skuluð þið minnast

Í ykkar minni mun ég lifa.

Þér skuluð minnast mín með bros á vör

Og þannig mun ég lifa.

Þér skuluð minnast mín með roða í vanga

Og ég mun lifa ungur að eilífu.

En ennfremur skuluð þið minnast þess hver ég var

Og ég mun lifa áfram sem ég.

                                    Höf. H.M.H


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.02.2007 11:26:08 / hofy

Shitt hvað ég er timbruð.....

Jæja ingunn systir vildi alminnilegt blogg svo ég verð eiginlega að blogga. En ég hafði mjög gaman af því sem hún sagði í seinasta bloggi ég eginlega baraað gráta þegar ég var að lesa það. Og ingunn þú veist að ég mindi gera hvað sem er fyrir þig svo ef þú biður mig um að flitja til þýskalands þá myndi ég gera það bara fyrir þig.

Enn nóg með það í gær þá var vinnuparty og ég held að ég og begga sem era ð vinna með mér höfum verið á djamminu með svona 80-90karlmönnum,(rafvirkjum) og það var geggjað stuð. Það var matur frá friðrik 5ta. Og svo nátturulega flæddi ölið. Og nóg var af því, ég elska menn. Það var hlegið og drukkið og hlegið og drukkið aðeins meira en svo kom babb í bátinn þegar allt ölið var búið kl. 9. en það var svosem í lagi. Folk var farið að tía sig heim eða í bæinn allir orðnir vel rallaðir og klukkan ekki orðin 10. svo var ferðinni heitið á amor þar sem snillingurinn/trubadorinn/rafvirkinn hann ómar hlynsson var að spila. Við vorum 10. ég og begga og 2rafmenn 4rafeyringar og svo okkar kallar svabbi og bjössi sem er nýi yfirmaðurinn. Og svo vitiði hvernig hófý er þegar hún era ð drekka og heyrir góða tónlist. Jú jú ég held ég hafi dansað við alla og ekkert smá fjör og þá erum við ekki að tala um að standa kjurr og hreifa hendurnar, við erum að tala um snúninga og sveiflur og vá gaman að dansa, um 12 leitið að ég heldi (svoltið erfitt að vita alltaf hvað klukkan er þegar maður er fullur) þá fór begga heim og skildi mig eftir með 8kalla hvað átti ég að gera við 8 kalla. En ég fann fullkomna lausn….. ég lét þá bjóða mér á barinn. Og svo dansaði ég aðeins meira. Ég kom heim að verða 5 í nótt og stein sofnaði. Ég svaf í 4 tíma og vaknaði ennþá full. Og nú sit ég í vinnunni svona half full/eða mjög mjög mjög timbruð og blogga. Ég er svo timbruð að ég get varla lesið á skjáinn. Ég hef ekki verið svona timbruð(full) lengi og svo er annað djamm í kveld. Með stelpunum. 5fræknu.úffi púffi hvað þetta verður erfiður sunnudagur. Tvöföld þynnka. Úff ég ætla að fara og fá mér mix. Ég er algerlega upp þornuð best að vera dugleg að drekka eitthvað annað en afengi í dag svo ég lifi kvöldið af. En við sjáumst hress, ekkert pex og bless bless.

 

p.s. rönning bíllinn undir minni stjórn fór á þvottaplan í gær og á þvottaplaninu hitti rönning ískraft bílinn undir stjórn jóns helga. og það var  svo freistandi að láta kústinn aðeins bara pínu ekki hitta bílinn. það hefði orðið helvíti magnaður vatnsslagur.....ég hefði átt að láta vaða.... það hefði orðið saga til næsta bæjar, blautbolakeppni á milli samkeppnisaðila... ég hefði pott þétt unnið.


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.02.2007 16:02:44 / hofy

Jæja ég ætla að vera jafn skemmtileg og Elfa...

 Jæja Dúllurnar mínar (gleymiði svo ekki að kópera líka spurningarnar með svörunum annars er svo samhengislaust að lesa þetta) tútelí tú..

1)Hvað heiti ég?
2)Hvar kynntumst við fyrst?
3)Hvað er miðnafnið mitt?
4)Hversu lengi hefurðu þekkt mig?
5)Hversu vel þekkiru mig?
6)Hvað hugsaðiru fyrst þegar þú sást mig?
7)Hvað er ég gömul?
Afmælisdagur?
9)Hárlitur (náttúrulegur)?
10)Augnlitur?
11)Á ég systkini?
12)Hefuru nokkru sinni öfundað mig?
13)Hvað finnst mér skemmtilegast að gera?
14)Manstu eftir því fyrsta sem ég sagði við þig?
15)Hvernig tegund af tónlist hlusta ég oftast á?
16)Hver er minn besti eiginleiki?
17)Hvort er ég feimin/nn eða mannblendin/nn?
1
Er ég fyndin/nn?
19)Er ég uppreisnarseggur eða fylgi ég öllum reglum?
20)Hef ég einhverja sérstaka hæfileika?
21)Spila ég á eitthvað hljóðfæri?
22)Ef það væri eitthvað flott gælunafn á mig hvað mundi það þá vera?
23)Hvað heldurðu að verði um mig í framtíðinni?
24)Hver er uppáhalds minning þín um eitthvað sem við höfum gert saman?
25)Heldurðu að við eigum eftir að vera vinir í framtíðinni?
26)Ef þú gætir gert eða sagt eitthvað sérstakt við mig núna, hvað mundi það vera?


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.02.2007 13:01:13 / hofy

Blogeddi bloggedi blog...

Ja hérna ég get ekki beðið eftir því að komst í skóla næsta haust. Ég skil ekki einusinni hvernig mér datt í hug að fara að vinna í heilt ár. En nú er svo stóra spurningin hvernig manni mun vegan í lögfræðinni. Hvað þarf maður að hafa til þess að meika það. Ég meina er ég manneskjan í þetta. Ætti maður ekki bara frekar að fara og læra ungbarnanudd og gerast ungbarnanuddari… ég elska ungbörn. Nú eða læra hárgreiðslu, það hefur nú alltaf legið vel fyrir mér. Hummm sálfræði….. held ég sé góður hlustari en verður maður ekki að vera svona nokkuð heill á geði sjálfur áður en maður getur farið að hjálpa öðrum.

En allavega ætli ég byrji ekki á lögfræðinni. Mig hlakkar ekkert smá til að fara í skólann, hitta nýtt fólk, og gera nýja hluti.

En nóg með það, ég þarf að fara að fara komst suður, ég þarf að komast suður til að knúsa hann Bauna minn. Ég get svo svarið það ég á örugglega eftir að einoka hann og Eyja færa hann barasta ekkert aftur, það eru komnar nokkrar myndir inná netið af honum og ég er búinn að skoða þær svona 100þús sinnum. Svo þarf ég líka að fara suður til þess að kíkja á Ingunni systir og fara á djammið með Elfu og svo er nátturulega verslunn sem heitir IKEA sem heillar mikið. Ég má bara eiginlega ekki fara þangað fyrr en ég kemst í mina eiginn íbúð því skápurinn minn tekur ekki endalaust við, nú þegar eru í honum 2 matarstell, hvítvínsglös, rauðvínsglös og vöflujárn.

Hey svo er ég að fá mér nýtt rúmm og fæ það vonandi á þriðjudaginn vona að það sé gott og peningana virði því já það kostar sitt.  Svo er það líka næstum því 50cm stærra en mitt svo ég fæ 25cm aukalega á báðum hliðum.  Málið er nefnilega að Baldvin er nú ekkert smá flikki,, ekki fitulega séð hann er massi og ekki séns að vekja hann á nóttunni né að færa hann og þegar hann sofnar á liggur hann oftast í miðju rúmminu sem er 140cm Baldvin tekur að jafnaði svona 100cm af því, því hann sefur með ölbogannna og hnéin út í loftið svo ég fæ 20 cm sitt hvoru meginn við hann, svo spurninginn er hvort vill ég sofa á 20cm parti á milli baldvin og veggsins eða vill ég hanga á brúninni hinumeginn við hann. En þetta stendur allt til bóta sem betur fer.

En jæja dúllurnar mínar egiði góðan dag og helgi og við sjáumst hress…


» 7 hafa sagt sína skoðun

20.01.2007 12:19:09 / hofy

Nýtt blogg

Jæja er þá ekki kominn tími á nýtt blog. Ég veit svo sem ekki alveg hvað maður á að blogga um en kannski bara svona bland í poka um það hvað er í gangi þessa dagana.

Já jólin og áramótinn liðu hratt og örugglega, og maður fékk svona hitt og þetta í jólagjöf, og ég held að peisan sem ingunn systir gaf mér stendur sko allveg örugglega mest uppúr, ég hef varala farið úr henni síðan. Áramótin komu og fóru með tilheyrandi áfengismagni, en þrátt fyrir þessa gósentíð þá hef ég mist 3kíló síðan 15desember. Nokkuð gott.

Ég er líka farinn að fara í ræktina helst á hverjum degi eftir vinnu, og djöfulli er það góð tilfinning að fara í ræktina og vera bara með flottustu gellunum á svæðinu, guð blessi allt fólkið með aukakílóin því þau bjarga alveg litlu sálinni minni. Já svo eru nátturulega rosalega mikið af sætum strákum í ræktinni, eða allavega 1-2 svo er nátturulega rosalega mikið af súkkulaðistrákum sem ég hef ekki mikinn áhuga á.

En já svo var bóndadagurinn í gær og ég sendi kallinum mínum blóm í vinnuna og allir öfunda hann núna því hann á bestustu bestu og lang flottustu kellinguna.

En já blessuð börnin, hann bauni fer alveg að fara koma í heiminn og mig hlakkar ekkert smá til. Eg er alveg með hnút í maganum og ég vildi að ég væri fyrir sunnan.

Og talandi um börn, margir kannast við pilluna,  eg lennti í frekar findnu uppátæki um daginn þar sem ég fór niður í apótek í þeim tilgangi að ná í pilluna mina eins og ég hef alltaf gert, svo kem ég niður í apótek og sóley vinkona era ð afgreiða svo ég fékk líka tækifæri á að spjalla við hana, svo tekur hún við lyfseðlinum mínum og fer á bakvið til þess að afgreiða mig, svo kemur hún fram og lyfjafræðingurinn á eftir henni, “heyrðu það er hætt að framleiða pilluna þína” og ég bara já, og hvað á ég að gera við því, ætlar apotekið að fara borga meðlag eða? En lyfjafærðingurinn sagði mér að það væri vísað til annarar pillu í staðin en hann ætti bara eitt spjald af henni sem fyrntist núna í janúar, kjálkinn á mér datt niður í golf áður en ég gat spurt hann hvort honum langaði að borga meðlag. Ég get svo svarið það ég gat núekki annað en hlegi, er verið að segja manni eitthvað. Ég hugsaði bara með sjálfri mér, so what if shit happens shit happens…..

Elsku dúllurnar mínar eigiði góðan dag og við sjáumst fljótlega.


» 8 hafa sagt sína skoðun

23.12.2006 13:27:05 / hofy

jólapistill

Jæja elsku dúllurnar mínar þá kemur jólapistillinn og upprifjun á árinu. þetta ár átti nú sína góðu og slæmu hluti, en svona yfir heildina litið þá vona ég að næsta ár verði betra. árið byrjaði á því að ég var nörruð í að taka þátt í ungfrú norðurland, það var svosem ágætt fyrir utan það að maður var alltaf að passa hvað maður át og maður þurfti að drullast í ræktina á hverjum degi... þetta skilaði sammt ekki nema 2 kílóum niður á við... ekki sátt hérna. en já æfa æfa æfa... en svo kom þessi dagur sem við munum flest mjög vel eftir. 25.febrúar 2006. þessi dagur byrjaði eins og flestir aðrir, með því að sofa frammeftir, svo mætti ég í vinnuna á greifann um fimmleitið. og ég held að það hafi verið um 9 leitið sem elfa hringdi í mig, en þá var ég í pásu, þegar hún vissi að ég var í vinnunni vildi hún ekki segja mér afhverju hún væri að hringja en þar sem ég heirði að eitthvað var að þá neiddi ég hana til þess.. hún sagði mér að Tómas og Jónas hefðu lennt í sprungu ofan í hofsjökli og það væri ekki mikið vitað ennþá en þeir væru búnir að vera þar í nokkra tíma. ég fór aftur framm að þjóna og ætlaði að harka af mér, en allt kom fyrir ekki ég endaði með því að ég hneig niður og fór að há gráta á bakvið dyrnar inn í eldhús. eftir þetta fór ég heim, kveikti á kertum og fyrsta manneskjan sem mér datt í hug að hringja í var Rakel frænka hans Jónasar, og ég held ég hafi aldrei heyrt nokkra manneskju tala svona lágt áður hún sagði við mig: Tómas er farinn.......og svo tók við þögn.

Kvöldið eftir að Tómas dó hittist stór hópur vinanna og svo var ég að skutla Jóa Svan heim og það voru þessi geggjuðu norðurljós, og jói sagði að Tómas væri strax farinn að fikkta í rafmagninu þarna uppi. og núna í hvert skipti sem ég sé norðurljós hugsa ég um Tómas og þetta kvöld. Þessi tími stóð mest uppúr á liðnu ári, flest annað er í hálfgerðri þoku, nema kannski það að ég tók þátt í ungfrú norðurland og ég útskrifaðist af málabraut, og lífið hélt áfram svo var það bara vinna éta sofa, ég skrapp jú í 2 vikur til Benedorm sem var mjög gaman, fyrir utan misheppnuðu snorkl ferðina mína.

ég hef sem sagt alltaf verið með svolitla fóbíu fyrir fiskum og þegar ég og ingunn systir fórum til Dominíska þá lá ég úti á vindsæng rétt við ströndina og fann alltaf svona smá pikk undir dínuna ég hét að þetta væru bara svona smá öldur að skella við dínuna en svo ákvað ég að kíkja og þá var trofa af svona litlum hvítum gullfiskum fyrir neðan mig, þeir hafa varla verið nema svona 4-6cm á lengd, og þeir voru að pikka í dínuna hjá mér,,, ég get svo svarið það hvernig hefði það verið ef ég hefði verið étinn af gullfiskum, svo ég stökk af dínunni og sinnti eins hratt og ég gat í land ég heldi ég hafi slegið heimsmet í sundi , Þ.e. frjálsum aðferðum. en allavega aftur að snorkl sögunni, málið er að baldvini finnst rosalega gaman að snorkla og kafa, og hann sanfærði mig um að koma með að snorkla, svo ég keipti græjurnar og við fórum niður á strönd(og hann vissi af fiskafóbíunni hann hélt bara að þetta væri eitthvað djók) svo ég herti upp hugann og óð útí...jæja kominn með sjó upp í mitti og finn eitthvað strjúkast við löppina á mér( djúpur andardráttur) jæja hófy hertu upp hugann, og hófý lagðist á magann og ætlaði að byrja að synda en þá sá hún fiskana,,,, ég var fljót að standa upp aftur. shit. shit. shit. ég stóð graf kjur og var byrjuð að ofanda, ég fékk panik atak, ég gat ekki hreift mig þó að mig langaði mest að hlaupa í land, og það , ég var í algeru panik með tárin í augunum og þá spurði baldvin, "þú varst ekki að grínast, ertu virkilega svona hrædd við fiska" ég komst loksins í land aftur en var skjálfandi af hræðslu, eg hef aldrei lennt í öður eins. svo nú megiði hlæja af mér, en ég er skít, skít, skít hrædd við fiska.

svo flutti elfa líka suður á árinu og skildi mig al eina eftir. og baldvin fékk vinnu, og nú sjáumst við aldrei, so life pretty mutch suks þessa dagana. en allir sem ég þekki og mun þekkja Gleðileg Jól og gott og farsælt komandi nýtt ár. sjáumst hress og takk fyrir árið og árin sem hafa liðið.

Með reynakomastíjólaskapiðkveðju. ykkar einstaka Hófý

"Tómas er farinn". eg er henni innilega þakklát fyrir að segja mér það. því innst inni vissi ég að annar þeirra var farinn, ég vissi bara ekki hvor. Elsku Tómas guð blessi þig og við vitum öll að þú fórst til hans því honum vanntaði meiri hjálp til að vaka yfir okkur hinum.

» 5 hafa sagt sína skoðun

19.12.2006 13:00:18 / hofy

Jófríður og Elfa þið eruð snillingar, ég fann búninginn...

Hvor finnst ykkur skólastelpa eða paris hilton í innkaupaleiðangri...


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.12.2006 16:08:16 / hofy

Jólagjafir...

...Eg er alveg hugmyndalega geld á hugmyndir...

Hvað myndi þig langa í í jólagjöf ef þú værir 25ára, og áhugamálin væru m.a. gólf, guitarhero, langdreignar kvikmyndir og kærastan...

endilega gefið mér hugmyndir.... i need some ideas...


» 12 hafa sagt sína skoðun

25.11.2006 11:30:57 / hofy

Pistill

Jæja ég hef fengið áskorun um smá pistil, jæja ég ætti kannski ekki að koma með enn einn pistilinn um fitu eða ekki fitu en kannski get ég komið aðeins að því þar sem fita og ekki fita er nú uppáhalds málefnið mitt,  mér langaði að minnast á hvað mér finnst það frábær t á Madrid að þar stoppuðu þeir þetta anorexiu model dæmi og nú verða motel á tiskusíningum að vera “nógu” þungar miðað við hæð svo þær komast ekki upp með að half drepa sig úr hor.

 

 



Já og svo eru jólin á næsta leiti, svo hvað kemur fyrist upp í hugan þegar maður hugsar um jólin, jú pakkar auðvita, en svo fær maður samviskubit og fer að hugsa um J.C. eða öðru nafni Jesus Crist,  það leiðir náttúrulega til þess að maður fer að efast bæði um sköpunarsöguna og steingerfinga. Hvort finnst ykkur konum skárra að verða til úr öpum sem upprunalega þróuðust frá sjávardýrum eða vera skapaðar úr rifbeini úr kallmanni í þokkabót.

Rifbeinið er svo sem ágætt svo framanlega sem að guð hafi verið að reyna að gera betur en í fyrra skiptið. Hann gleimdi jú svo morgu hjá mönnum, hann gleimdi t.d. að láta þá hafa leg, svo fóstur ggæti myndast, og vitiði til núna á þessum tíma þá er hugsanlegt að við konurnar gætum fjölgað okkur sjálfar, það hefur verið til rannsóknar að frjófga egg með því að “sprauta” inn í það frumu úr okkur sjálfum……. SJÁLFFRJÓVGUN…… þá getum við bara losað okkur við kallana, þetta er hinns vegar ekki möguleiki fyrir kalla. Já guð gleymdi líka að gefa þeim hæfileikan að gera fleiri en einn hlut í einu, fyrir utan að þeir geta horft á fótbolta og drukkið bjór í einu… ég held að það sé merki um þróun en eins og ere r þetta einu hlutirnir sem þeir geta  gert tvennt í einu á sama tíma. En jæja ég ætti kannski að hætta að nýða litlu greyin, ég meina það er ekki hægt annað en að vorkenna þeim. En svona miðað við kalla þá getur kona til dæmis haldið á ungabarni á meðan hún talar í símann, á meðan hún riksugar og horfir á glæstar í leiðinni.

 

 



En já……HVERJUM LANGAR Í BARN……. Undanfarið finnst mér allir vera farnir að “lifa lífinu” folk era ð flitja inn saman, folk er farið að hugsa um barneignir og æi, ég verð nú að viðurkenna það að ég hefði ekkert á móti einu kríli, eg held ég myndi alveg höndla það. Ég meina þó maður eigi eftir að klára að mennta sig þá er barn ekki neitt sem ætti að standa í vegi fyrir manni. Ég kannski fæ smá að spreita mig í janúar, þegar Bauni frændi fæðist, ég ætla sko að vera bestasta besta frænka í heimi, þó tæknilega séð sé ég ekki frænka hana.

 

 



Jæja svo niðurstaðaðn er þessi … viltu vera api eða rifbein….?

 

 



Vonandi vekur þetta einhverja umhugsun sérstaklega á vissum bókasöfnum.


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.11.2006 11:24:08 / hofy

A good night sleep...

Vá ég hef ekki sofið svona vel og lengi lengi.... en í morgun var fyrsta skipti í svona 5 mánuði sem ég vakna ekki þreitt... það var æðislegt að vakna án þess að vera með bauga niður á bringu og hreinlega langa frammúr....

en ég verð að segja ykkur svolítið, ég fór á árshátið hjá bræðrum mínum á miðvikudaginn var og 9bekkur í glerárskóla er alltaf með aðal sjóvið, og að þessu sinni voru þau með Dyrin í hálsaskógi, og hann ásgeir bróðir var lilli klifurmús. hann söng ein 3 lög einsöng og ég get svo svarið það fyrist hélt ég að hann væri bara að hreyfa varirnar og lagið væri spilað undir, en gaurinn var að singja sjálfur... ég táraðist nú bara hálfpartinn þegar ég fattaði það.. þetta var sko geggjað og ég er ekkert smá stolt stóra systir...

en ég veit ekki hvað ég á að segja fleira....  endilega kommentiði með eitthvað slúður, mig vantar eitthvað slúður...


» 7 hafa sagt sína skoðun

04.11.2006 12:26:47 / hofy

Æ hvað þetta var góð helgi þarna umdaginn

Seinasta helgi var geggjuð, ég vona að við höfum svona helgi fljótt aftur.

Sko á myndinni eru frá vinstri: Elfa, Sóley, Ég(Hófý), Þrúður og Sunna.og við erum búnar að vera vinkonur meira og minna síðan í 5 bekk í síðuskóla, en eins og í öllum samböndum hefur náttúrulega eitthvað komið uppá svona einstaka sinnum en við höfum nú alltaf náð sáttum aftur. en við höfum reynt í gegnum árin og ætlum aðhalda áfram að reyna að hittast allar 5. svona einstaka sinnum og hafa stelpukvöld.

það er leiðinlegt og en satt að segja það að eins og svo margir höfum við því miður vaxið svoltið í sundur. en það er auðvita eðlilegt að við séum ekki sömu manneskjurnar núna og í 5 bekk. en við náumenn vel saman og getum skemmt okkur saman.

En allavega þá eru þetta einar af bestu æskuvinkonum sem ég hefði geta hugsað mér að eignast og halda í, það voru þær sem pössuðu að ég léti ekki lemja mig í klessu og kenndu mér að vera svolítil dama, Elfu tókst meira segja stundum að fá mig til þess að hreifa á mér feita rassinn..

en punkturinn er að þessar stelpur sem ég á eru alger yndi og ég veit að ég get alltaf talað við þær. og ef allir væru svona heppnir með vini þá væri heimurinn betri staður...já og fallegri líka því hafiði tekið eftir því hvað við erum allar geggjað fallegar.. vonandi voruð þiðmeð sólgleraugu þegar þið sáuð myndina annas eruð þið líklegast blind núna.

Já og svona ein mynd í lokinn af tveimur bestustu bestu vinkonum mínum það er bara verst að Eyja er ekki á henni því þá væri hún fullkomin.


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4